Persónuverndarstefna
Síðast uppfært: 3. nóvember 2026
Oriens ehf. vill að viðskiptavinir viti hvaða upplýsingum við söfnum, hvers vegna og hvað við gerum við þær. Þessi stefna gildir um vefinn okkar og pöntunarappið.
Hver ber ábyrgð á upplýsingunum
Oriens ehf., kt. 480196-3099, Gylfaflöt 4, 112 Reykjavík, sala@oriens.is, sími 561 1690.
Hvaða upplýsingum söfnum við
- Aðgangur: netfang, nafn og viðskiptamannanúmer, afhendingarstaðir og þitt verð og afsláttur. Þessar upplýsingar eru í viðskiptakerfi okkar og við sækjum þær þegar þú skráir þig inn.
- Pantanir: þær vörur og það magn sem þú pantar, afhendingardagur, athugasemdir og pöntunarsaga.
- Hafa samband: nafn, fyrirtæki, netfang, símanúmer og skilaboð sem þú sendir í gegnum formið.
- Greiðslur: kortagreiðslur fara fram á greiðslusíðu Teya. Við fáum aðeins staðfestingu á því að greiðsla hafi borist, aldrei kortanúmerið sjálft.
- Tæknilegar upplýsingar: IP-tala og tími beiðna í netþjónaskrám, til að tryggja öryggi og finna villur.
Hvers vegna og á hvaða grundvelli
Við notum upplýsingarnar til að afgreiða pantanir og senda reikninga (efndir samnings), til að svara fyrirspurnum og verja þjónustuna gegn misnotkun (lögmætir hagsmunir) og til að uppfylla lög, til dæmis um bókhald. Við seljum aldrei upplýsingar og notum þær ekki í auglýsingar.
Vafrakökur
Vefurinn notar aðeins tvær kökur og engar auglýsinga- eða greiningarkökur:
- oriens_session heldur þér innskráðum og rennur út eftir 30 daga eða þegar þú skráir þig út.
- oriens-locale man tungumálið sem þú velur og rennur út eftir eitt ár.
Hverjir fá upplýsingarnar
Við notum eftirfarandi þjónustuaðila til að reka vefinn og appið. Þeir vinna upplýsingarnar fyrir okkur og mega ekki nota þær í eigin þágu:
- Microsoft: Business Central viðskiptakerfið og tölvupóstur frá sala@oriens.is, með gögn á evrópsku svæði.
- Microsoft Azure: hýsing vefsins á Írlandi.
- Teya: kortagreiðslur.
Hversu lengi geymum við upplýsingar
Pantanir og reikninga geymum við eins lengi og lög um bókhald krefjast. Aðgangsupplýsingar geymum við á meðan þú ert viðskiptavinur. Tölvupósta sem berast í gegnum samskiptaformið geymum við eins lengi og þarf til að svara þeim og halda utan um samskiptin.
Þín réttindi
Þú átt rétt á að fá að vita hvaða upplýsingar við höfum um þig, láta leiðrétta þær eða eyða þeim, takmarka eða andmæla vinnslu og fá afrit af þeim. Sendu okkur línu á sala@oriens.is. Ef þú ert ósátt/ur getur þú leitað til Persónuverndar, personuvernd.is.
Pöntunarappið
Appið notar sömu upplýsingar og vefurinn. Innskráningarlykillinn er geymdur í öruggu minni símans. Í appinu eru engar auglýsingar, engin greiningarforrit frá þriðja aðila og það sækir ekki staðsetningu, tengiliði eða myndir.
Breytingar
Ef við breytum þessari stefnu birtum við nýja útgáfu hér með nýrri dagsetningu.